Throw up stíllinn er skrefið fyrir ofan tagg stílinn og er oftast gerður með tveimur eða fleiri litum. Þessi stíll er ekki eins óvinsæll og taggið en þrátt fyrir það er hann oftast álitinn skemmdarverk líka. Tilgangur Throw up stílsins er sá að reyna að fylla sem stærsta svæðið með nafni sínu á sem minnstum tíma.