Frá merkingarlausu kroti að viðurkenndri list.
Uppruna graffiti-listar er hægt að rekja til veggmynda hellisbúa. Það hvernig fólk tjáir sig í gegnum listina á ólíkum tímum virðist vera sambærilegt. Listin hefur þó þróast mikið og orðið fjölbreyttari síðan á tímum hellisbúa. Veggmyndir í hellum eru sumar allt að 64.000 ára gamlar og eru þær oftast einfalt krot af dýrum og mönnum. Frá því að graffiti varð að því sem það er í dag hefur stanslaust verið litið niður á það og það hefur verið séð sem skemmdarverk árum saman og það er ekki alveg að ástæðulausu. Á hverju ári eru u.þ.b. 20 milljónum dala eytt í að fjarlægja graffiti og veggjakrot í Bandaríkjunum. Graffiti er ekki alltaf neikvætt, það eru til margir atvinnu graffarar sem fá borgað fyrir að gera listaverk á opinberum svæðum. Ef maður verður tekinn fyrir það að graffa þá verður maður oftast sektaður. Þrátt fyrir það eru margir sem að taka áhættuna og graffa á hluti sem þeir eiga ekki. Í mörg ár hefur fólk deilt um hvort graffiti sé í raun list eða bara einfaldlega skemmdarverk. Nýlega hefur graffiti orðið miklu þekktara og er orðið þekkt list í Bandaríkjunum og fólk er byrjað að viðurkenna að graffiti getur einnig verið ákveðin list en ekki bara skemmdarverk. Banksy, sem er einn þekktasti graffiti listamaður í heimi hefur öðlast mikla virðingu út um allan heim. Banksy hefur komið mikið af fólki út í graffiti listina og fengið fólk til þess að átta sig á listinni sem felst í graffiti þótt það geti verið ólöglegt. Graffiti er samt ekki alltaf jafn flott og verkin hjá Banksy til dæmis þegar fólk taggar og krotar einhverja stafi á veggi án þess að hugsa út í stíl og hversu flott graffið er. Spurningunni er í raun ekki hægt að svara því að það fer einfaldlega eftir skoðunum einstaklings. Graffiti er mismunandi eftir heimsálfum vegna öðruvísi menningar og eru þá öðruvísi stílar notaðir í ólíkum löndum. Það sama gildir um tagg, til dæmis er oftast klíkunöfn eða gengjatögg gröffuð í Norður-Ameríku en á Íslandi eru þetta oftast bara unglingar sem tengjast engum gengjum sem merkja sér stað með gælunafni sínu. Lög eru líka öðruvísi á mismunandi stöðum, ef þú verður tekinn af lögreglunni fyrir að graffa í t.d. Mumbai getur þú fengið 800 dollara sekt og/eða jafnvel ár í fangelsi. Ef þú verður gómaður fyrir veggjakrot í New York getur þú staðið uppi með 500 dollara sekt en það er mjög ólíklegt að þú lendir í fangelsi nema ef þú hefur verið tekinn fyrir sama glæpinn oft. Í Bogotá í Kólumbíu er löglegt að graffa á hluti sem eru í eign almennings. Ástæðan af hverju graffiti varð leyft er sú að Felipe Becerra var skotinn af lögreglu fyrir að graffa árið 2011 og við það urðu meiriháttar mótmæli gegn yfirvöldum. Almenningur hefur mismunandi skoðanir um graffiti á mismunandi stöðum. Graffiti hefur hlotið vinsælda í samfélagi borgarinnar Bogatá. En íbúarnir í Detroit hafa þeir allir ekki neina sérstaklega jákvæða skoðun á graffiti. Dómsvöld Detroits veita allt að 5 ára fangelsisdóm ef maður verður gómaður að veggjakrota. |