Það er þessi týpa af graffiti sem flestir líta niður á og kalla „veggjakrot“. Tagg er algegnt á meðal byrjenda vegna þess að það er létt og fljótlegt að búa það til. Tagg er oftast notað til að merkja svæði með dulnefni sínu og maður tekur eftir því allstaðar í borginni. Það er venjulega bara einn litur notaður. Tagg er hægt að rekja að stórum glæpagengjum í Bandaríkjunum sem merkja sér hverfi og staði. en tagg á Íslandi er oftast graffað af unglingum sem hafa enga tengingu við þessi hættulegu glæpagengi Bandaríkjana.