Um verkefnið:
Góðan daginn, Við Ísak Hugi Einarsson, Sveinn Kjartan Hjartarsson, Ólafur Fjalar Freysson og Bjartur Eli Finnsson erum loksins að útskrifast úr 10.bekk í Laugalækjarskóla. Síðustu fjórar vikurnar eru nemendurnir í 10.bekk látnir vinna lokaverkefni sem þeir eiga að kynna fyrir allan árganginn og foreldra.
Verkefni okkar snýst um graffiti. Við völdum graffiti vegna þess að það er stór partur af list okkar kynslóðar. Einnig er graffiti mjög umdeilt og margir hafa ólíka skoðun á því. Graffiti er stórt hugtak sem býður upp á mikið af efni til þess að fjalla um. Okkur fannst þetta verkefni vera frekar langdregið en við fengum að velja okkar eigið efni sem gerði það skemmtilegra. Enginn af okkur hafði áhuga á graffiti fyrir verkefnið en Sveini tókst að kveikja með okkur áhuga. Sveinn er sá eini sem hefur reynsluna á graffiti í hópnum. Við spurðum okkur spurninguna „Hver er munurinn á veggjakroti og skemmdarverki?“ við einblíndum aðallega á þessa spurningu og gerðum hana að rannskóknarspurningu. Við byrjuðum á því að kynna okkur hinu listrænu hlið graffitis. Síðan ákváðum að búa til vefsíðu um graffiti. Við horfðum síðan á heimildarmyndina „Exit Through The Gift Shop“ sem fjallar mikið um graffiti og þekkta listamenn. Myndin jók skilning okkar á graffiti og gaf okkur dýpra innsæi, myndin var mjög góð of þarf maður ekki að hafa bullandi áhuga á graffiti til þess að finnast hún skemmtileg. Eftir myndina skrifuðum við texta um graffiti listamennina Banksy og Mr. Brainwash sem myndin fjallar um. Við skrifuðum líka um uppruna og þróun graffitis. Síðan rannsökuðum við efnið tengt rannsóknarspurningunni okkar og skoðuðum umdeilur fólks á netinu varðandi rannsóknarspurninguna okkar hvort graffiti sé skemmdarverk eða ekki. Við skrifuðum síðan texta út frá því og bættum inn á vefsíðuna. Sveinn graffaði verk sitt á skateparkið fyrir utan skólann og tók það upp, í verkið fóru u.þ.b 4 spray brúsar og tók það rúmlega 40 mínútur að búa til. Við bjuggum til „Timelapse“ myndband af verkinu sem þið getið fundið á vefsíðunni okkar. Stíllinn sem var notaður í verkið var Throw up og fjöllum við meira um það ásamt öðrum graffiti stílum á vefsíðunni. Á vefsíðunni fjöllum við einnig um nokkra listamenn og segjum stuttlega frá hverjum og einum. Við bjuggum til könnun sem við auglýstum á samfélagsmiðlum. Í þessari könnun okkar spurðum við nokkra spurninga sem tengjast graffiti og hvernig fólk horfir á það. Af þeim 300 sem tóku könnunina voru einungis 100 notaðir í niðurstöðuna útaf forritinu sem við notuðum. Fyrsta spurningin okkar var sú á hvaða aldursbili þáttakendurnir væru, þá kom í ljós að meirihlutinn af þeim voru á aldrinum 13-18 ára. Í annarri spurningunni spurðum við hvaða kyn þátttakendur okkar voru. Það kom í ljós að hlutfallið var 65% konur og 35% karlar. Þriðja spurningin okkar var: „Hefur þú einhvern tímann krotað á vegg?“. Niðurstaðan frá þessari spurningu var sú að 16% svöruðu já við henni. Það kom okkur að óvart, við héldum að hlutfallið yrði lægra. Að lokum spurðum við hvort fólk leit á graffiti sem skemmdarverk eða list. 87% svöruðu því að „graffiti væri stórt hugtak og flokkuðu sumt undir list og annað sem skemmdarverk.“ |