Xavier Prou, fæddur árið 1951 er Franskur listamaður. Hann var meðal þeim fyrstu graffiti listamönnum Parísar. Xavier byrjaði að graffa stensil rottur vegna þess að honum fannst áferðin passa vel í París. Xavier telur rottur "Eina frjálsa dýrið í borginni". Seinna byrjaði Xavier að graffa verkin sín með dýpri pólitískri merkingu. Elsta varðveitta verkið hans Xavier er eftirlíking af fræga málverkinu "Madonna di Loreta" eftir Caravaggio sem hann graffaði í Þýskalandi árið 1991. Verkið varð endurfundið árið 2012, hulið plakati.
Breski listamaðurinn Banksy viðurkenndi áhrifin sem Blek le Rat hafði á sig og sagði "alltaf þegar ég held að ég hafi gert eitthvað frumlegt, finn ég það út að Blek le Rat gerði það sama, bara 20 árum á undan mér." Upphaflega var Blek ósammála þeim sem ásökuðu Banksy um að herma eftir sér: "Fólk segir að hann hermi eftir mér, en mér finnst það ekki. Ég er gamli maðurinn, hann er nýji strákurinn og ef ég hafði áhrif á listamanninn, finnst mér það gott. Ég elska það. Nýlega sagði blek í heimildarmyndinni Graffiti Wars: "Þegar ég sé Banksy búa til manneskju eða rottur, sé ég auðvitað hvaðan hann fær hugmyndina. Ég er pirraður. Ef þú ert listamaður áttu að nota þína eigin tækni. Það er erfitt að finna tækni og stíl í listinni. Þegar ég sé stílinn minn vera notaðan annarsstaðar, það líkar mér ekki við."