Mr. braiwash
yThierry Guetta var Frakki sem var algjörlega háður því að taka allt upp eftir að mamma hans dó þegar hann var 11 ára gamall. Frændi hans sem gengur undir nafninu „Invader“ kynnti Thierry fyrir graffiti og hann varð háður spennunni sem fylgdi því. Thierry elti frænda sinn um allt þar sem hann gerði listina sína og tók það allt upp. Invader kynnti Thierry fyrir listamanni sem heitir Shepard Fairey sem bjó til fatamerkið OBEY sem hann graffaði um alla borgina og nokkra aðra og Thierry tók upp á meðan listamennirnir gerðu verkin sín. Þegar Thierry hafði fylgt flestum af þekktustu graffiti listamönnum Bandaríkjanna og tekið þá upp fékk hann loksins að hitta einn þekktasta graffiti listamann heims, Banksy og þeir urðu góðir vinir. Þegar Thierry hafði aðstoðað og fylgt banksy í einhvern tíma sagði Banksy við Thierry að hann ætti að gera heimildarmynd úr öllu efninu sem Thierry hafði tekið upp en myndin kom mjög illa út þannig að Banksy tók það í sínar eigin hendur að gera myndina. Á meðan Banksy gerði heimildarmyndina lagði hann til að Thierry myndi gera litla listasýningu. Thierry fór allt of langt með það og seldi næstum því allt sem hann átti til þess að leigja stórt vöruhús og vinnuafl í sýninguna sína sem varð stærsta listasýning í Los Angeles árið 2008. Hann kallaði sig „Mr. Brainwash“ og setti upp yfir 200 myndir og listaverk sem hann og vinnumenn hans voru búnir að gera á 6 mánuðum. Það mættu yfir 4000 manns á sýninguna og Mr. Brainwash seldi listaverk fyrir rúmlega milljón dollara. Þessi listasýning var eiginlega móðgun fyrir marga aðra listamenn sem hafa eytt mörgum árum í að búa til sinn eigin stíl vegna þess að Mr. Brainwash hermdi eftir mörgum verkum og þróaði stíl sinn og listasýninguna á örfáum mánuðum. Í kjölfarið af þessu varð Thierry eða „Mr. Brainwash“ heimsfrægur og er orðinn einn af ríkustu graffiti listamönnum heims.